Eftir frábæran páskamorgun með páskaeggjum og tilheyrandi gleði var
komið að góðri hreyfingu.
Fór út að leika og gekk/hljóp 9 kílómetra og prílaði stigaskrímsli í Kóparvogi.
Þetta gerði ég í veðri sem ekki er hægt að lýsa á einn veg 🙂
Algjörlega öll veður sem ég fékk….frá snjóstormi til glaða sólskíns 🙂
En þá var komið að hádegis hressingu.
Og upplagt að fá sér smá hollustu vega upp á móti páskaeggjastuðinu 🙂
Páskaboost.
Vanillu skyr.is
Frosin banani
Frosið mango
Frosið spínat
Gulrætur
Engifer
Vatn
Ferskt mango og melóna á toppinn 🙂
Njótið páska gott fólk.