Njótum útiveru og sumars.

1959340_10152337396915659_5557259100201531072_n

Góðan daginn .

Jibbí jey sólin kom aftur.

Já sumarið er nefnilega að skella á.
Og það er hægt að fara koma sér í úti gírinn.
Hreyfa sig meira utandyra.
Það þarf ekki að reima hlaupaskónna á til að njóta útiveru.
Bara rölt um hverfi getur verið góð byrjun .
Eins og ein ræktarvinkona gerir tekur póstnúmerin fyrir.
Snildar trikk fyrir að hafa tilgang í að kynna sér og labba um hverfin sín.
Síðan má byrja hlaupa milli staura…..eins og ég geri 🙂
Mér finnst ekki eins leiðinlegt og hlaupa og áður.
En er súkkulaði kleina þegar að kemur að hlaupum.
En ætla og skal geta þetta .

En umfram allt er að njóta útiveru.
Taka tröppur og hlaupa upp nokkrum sinnum til að koma hjartanu í smá stuð 🙂

Finna góðan hring í kringum vatn það eru nokkur góð vötn á höfuðborgarsvæðinu.
Taka strætó langt út í buskan og labba heim .
Fara með viðhengi á hjólum í búðina og draga svo heim og fá smá útúr búðarferðinni 🙂

Hætta að fresta öllu .
Heldur kíla á hlutina.

Að létta lífið sitt tekur tíma og tekur helling á 
Og oft á tíðum langar manni að leggjast í gólfið eins og lítið barn í Hagkaup sem ekki fær nammið sitt…
Arga bara yfir hve seint þetta tekur allt !
En það er ekkert annað í boði en halda lóðrétt áfram.
Góðir hlutir gerast hægt .
Ofurhægt á köflum 🙂
En þetta kennir manni þolinmæði .
Alltaf að sjá ljósa punktinn .

Jæja ég er komin í gallann.
Nú verður tekið á 🙂
Heilsuborgin bíður mín í morgunsárið.

Takk kæru vinir fyrir að deila síðunni minni í gær….þetta skotgengur og ég sé bara glitta í 4.000 like 
Þið eruð snillingar 🙂

Eigið góðan dag .

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s