Hádegið .
Ég gæti lifað á þessum mat
Lax fyrir mér er himnasæla.
Mér bæði líður svo vel af Lax og hann gerir mér líka gott.
Þegar að ég fæ þurra húð eða mér finnst vanta upp á olíur í líkamanum…tek ég smá Laxa og feita fiska æði
Avacadóið hjálpar líka helling.
Það er vítamínsprengja þar á meðal , vítamín E, B, C og K.
Mjög fituríkt og margir í „megrun“ skíthræddir við Avacado
En góð fita gerir engum neitt illt.
Mangóið er líka spreng fullt af gleði og vítamínum
Ofnbakaða grænmetið er algjör bomba og snild að eiga til í dalli í ísskápnum.
Hægt að skella smá á disk sem millimál líka
Svona matur er bæði hollur góður og fallegur.
Gerir gott og drífur kraftin fram.
Ég verð að hugsa vel um olíur og Omega 3 því þeir sem eru með MS þurfa passa extra vel upp á taugakerfið.
Ég lít á fæðu í dag sem eitthvað til að lækna….ekki til að veikja.
Hugsum um fæðuna og njótum lífsins 🙂