Góðan daginn
Já það er eiginlega eina ráðið sem ég get gefið til þess að ná vigtinni niður
„Borða hreinan mat og svitna í poll“
Stundum stoppar vigtin .
Búmm.
Ekkert gerist.
Þar er ég.
En þá þarf að hugsa út fyrir vigtina.
Treysta á FRAMFARIR.
Ef ég get ennþá troðið mér í litlu buxurnar….þótt vigtin hreyfist ekki
Þá er ég sátt.
Það eru svo mörg stig sem ég hef gengið í gegnum í átt að léttara lífi.
En alltaf verð ég samt að trúa á sjálfan mig.
Að trúa að ég geti þetta
Að allt sé hægt!
Fara raunverulega alltaf aðeins lengra.
Eins og þegar að ég er spurð… “ Er þetta ekki auðveldara núna…gymið“ ??
NEIBB
Alltaf aðeins erfiðara.
En samt bara mér að kenna….fer alltaf aðeins lengra.
Ég urra mig áfram 🙂
Þótt líkaminn stundum gargi og ég alveg að gefast upp…þá er samt þessi rödd sem ég á inni í mér sem tekur yfir „Gerðu þetta alla leið“
Og með þessum orðum stekk ég í strigaskónna 🙂
Komin í gallann og Tabata tími með hressum konum núna í morgunsárið
Aldrei gefast upp !
Þú ert svo margfalt betri en það
GET-SKAL-VIL !
Eigið góðan dag.