Sælgæti
Ég var að kafna úr súkkulaði þörf….var farin að titra hreinlega !
Skellti í súkkulaði búðing fyrir mig og litla kallinn minn.
Núna sit ég og „súkkulaði púkinn “ með bros á vör og mölum 🙂
Súkkulaði búðingur.
1 frosin Banani
1 vel þroskað avacado
1 msk. hressileg…gott kako
7 dropar English toffee stevíu
örfá korn salt…
1 msk. vanillu skyr.is
Fjörmjólk eftir smekk…eftir hvað þykkan búðing maður vill.
1 daðla….má sleppa. En mér finnst það svo gott með …eins og súkkulaði bitar
Allt í blandara .
Ofan á…grófar kokos flögur og hörfræ 🙂