Hádegið.
Algjörlega endurnærð eftir frábæran Heilsuborgartíma.
Öll þreyta og uppgjöf fokin út um gluggann .
Og þegar að manni líður vel þá velur maður góðan mat 🙂
Allt þarf þetta að spila saman.
Lax með Balsamik gljáa frá Sollu.
Iceberg með gúrkum, olivum og Hemp fræja ítölsku blöndunni frá Lifandi Markaði.
Rifin Gulrót með Tamara möndlum og lime kreist yfir.
Vatnsmelóna og meira af Lime…fæ aldrei nóg af Lime safa .
Ljúft er það 🙂