Góðan daginn.
Já nei ég er engin „járnkerling“
Og er í pínu hýði núna…
Mörg áföll og allskonar hafa áhrif á mann.
Í dag er ég með verki á við 10 manns á hamri að reyna búa til afsteipu á fætinum á mér!
Upp úr þurru fékk ég sýkingu í lið á tánni ( lesist upp úr þurru…en fékk rispu á tánna fyrir stuttu )….og dúddamía!
Tvær svefnlausar nætur og komin á sterkt pensilín.
Vonum að þetta lagist sem fyrst „Not my style“
Og að komast ekki í Heilsuborgina það er stórt mál
En svona er þetta bara .
Svo ég ætla bara að fá að vera súr i dag.
Og það er sko alveg hægt að vera það illt í tánni að maður fái tár….sko alveg!
Líka þótt maður sé töffari.
Eigið góðan dag.