Hugurinn út um allt og góðir tímar framundan.

10348617_308511139296487_6764998248408075491_n

Góðan daginn.

Jæja Eurovision búið og fór bara frábærlega 
Evrópa að verða fordómalaus og mikið gleður það mitt hjarta.
Að við getum fengið að vera eins og okkur líður best.
Hvað er betra en það 

Í næstu viku er ég að fara til London og þaðan til Birmingham.
Ætla hjálpa til á sýningu sem heitir Body expo 2014 í Birmingham.
Þar ætlum við að kynna inn í þann stóra líkamsræktarheim Snackfish fullur af náttúrulegu Próteini.
Við þekkjum hann sem Harðfisk 
Í Harðfisk er yfir 80% gr. af Próteini í 100gr.
Svo þetta verður pottþétt skemmtileg nýjung inn í Prótein flóruna.

Hugurinn minn er samt komin á flug með ferðina til Sofiu í Búlgaríu.
Maðurinn minn gerði þennan litla bækling fyrir mig.
Ferðin mín í myndaformi.
Og er gaman að sjá þetta svona svart á hvítu.
Þetta er hægt.
Það er hægt að komast út úr heimi sjúklegrar offitu í hraust eintak af sjálfri sér.
Með því að ná taki á huganum 
Með því að finna kærleikan til síns sjálfs.
Og hlakkar mig orðið mjög mikið til að hitta fleiri sem eru í mínum sporum allstaðar að úr henni Evrópu .
Fólk sem er að lifa með offitu .
Í þessa ferð fer ég stuttu eftir heimkomu frá London.

EN í dag er dagurinn sem ég ætla slaka algjörlega á .
Hef keyrt áfram núna í 3 vikur á aðeins of miklum hraða í Heilsuborginni 
Svona er þetta bara þegar að gleðin tekur öll völd.
En líkaminn þarf jafn mikið á rólegheitum að halda og öllum hamagangnum.
Hvíldin er stórt atriði .
Að breyta svona líkama sem var fastur í mikilli offitu og verkjum yfir í hraust eintak á sjálfum sér er mikið og alls ekki létt verk.
Dúndur gaman samt en er ekki líka „Gangið hægt um gleðina dyr“ málið .
Passa upp á sjálfan sig ekki keyra sig út.

Eigið góðan sunnudag .

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s