Kvöldmaturinn.
Lax og aftur Lax…..þetta klikkar ekki 🙂
Lax úr Hafið Fiskverslun besti fiskurinn og þjónustan einstök .
Ég keyri langa leið eftir fiskinum frá þeim.
svo hrifin líka af góðri þjónustu…brosandi afgreiðslufólki 😉
Og ég hef enga hagsmuni að gæta við þessa búð samt …..bara svo ánægð með þessa búð 🙂
Ég bý til kryddlög í skál.
saxa niður Kórander ( vel lófafyllir)
saxa niður Steinselju ( vel lófafyllir)
Kreista 1/2 sítrónu yfir
1 tsk. olivu oliu
Engifer rifin eftir smekk
Chilli rifin eftir smekk
chillisalt-Birki reykta saltið frá saltverk- pipar
Hræra öllu vel saman og pensla yfir fiskinn.
Síðan skera smá sítrónu yfir líka .
Ég vil Lax mjög lítið eldaðan…..en það er svo misjafnt hvað fólki finnst um eldun á fiski.
Svo minn er hafður bara rétt í 15min í vel heitum ofni.
Svo er það bara ofnbakað grænmeti og sætar kartöflur með .
Þetta er algjört æði…og þrusu hollt 🙂
Laxinn sjálfur er svo safaríkur og lögurinn svo góður að maður þarf ekki sósu með þessum rétt frekar en maður vill .