Góðan daginn.
Yndislegur morgun sem endaði svo á hádegis mat á Kaffivagninum.
Að eiga góðar vinkonur er mikið ríkidæmi 🙂
Og á ég sennilega þær bestu vinkonur í heimi hér
Og að fá að eiga svona vinkonu stundir eru manni dýrmætar.
Röltum út á Gróttu og horfðum að sumarið springa út.
Dásamlegt veður……logn og rigninga úði .
Takk fyrir mig 🙂
Maturinn á Kaffivagninum er bara valkvíði
Dásemdar matur.
Sveppasúpa í forrétt.
Fiskurinn var æði.
Sjávarréttapanna….stútfull af himneskum fisk í hvítvínssósu.
Kartöflur þessar litlu sætu með hýðinu og grænmeti .
Mæli með þessum stað .
Það er eitthvað við þennan part af Reykjavík allt að springa út.
Gaman að rölta á þessu svæði og það eru ótrúlega mikið af skemmtilegum veitingastöðum á þessu litla svæði.
Sumir dagar eru bara aðeins betri .