Ennþá er þetta einn af mínum uppáhalds.
Af þessu líður mér best.
Köldmaturinn.
Þetta er minn uppáhalds matur 🙂
Og ég gerði svo góða sósu með þessu að þetta toppaði allt.
Lax ofnabakaður.
Kryddaður með Herbes de Provence frá Pottagöldrum, sítrónu, salt og pipar.
Eldaður eftir smekk.
Ég kýs að hafa hann á háum hita inn í ofni og elda stutt.
Vil hafa hann mjúkan og góðan 🙂
Meðlæti.
Blómkálsgrjón
Salat og tómatur
avacado
Mangó sósa
Mangó sósa.
1 vel þroskað mango
3 msk. Ab-mjólk frá Örnu
3 msk. grísk jógúrt
1/2 tsk. Gott sinnep (Dijon)
1 msk. kókos flögur
örlítið af cayenepipar eftir smekk.
Aðferð.
Flysja Mangó og skella í blandara ( passa að setja ekki steininn í miðjunni með)
Allt hitt bætt út í .
Unnið í silkimjúka sósu.
Má líka setja smá kókos flögur auka á toppinn og pipar.
Hvar kaupi ég blòmkàlskorn og hvernig á að elda það?
Sæl Helga Björg 🙂
Hérna er fín uppskrift af blómkálsgrjónum.
https://lifsstillsolveigar.com/2018/03/28/blomkalsgrjon-flott-adferd-2/