Kvöldmaturinn Upprúllað Lasagna
500gr Magurt nautakjöt
4 Lasagna blöð ( nota spelt eða hollari týpu)
1 Rauð paprika
2 stórar gulrætur
Heimagerða chilly sósan mín
Kotasæla
Ostur
Oregano-salt-pipar-chilly krydd.
Byrja á að fletja út nautakjötið á smjörpappír ( gott að setja annað eintak af smjörpappír yfir og rúlla með kefli)
Síðan krydda vel með kryddinu.
Sósu yfir og kotasælu.
Síðan brjóta Lasagna blöð í ræmur og leggja yfir .
Rífa niður gulrætur og paprikuna….og strá yfir.
Smá af kryddi í viðbót og sósu.
Síðan bara rúlla upp og ost á toppinn.
Elda í ofni og njóta 🙂
Ferlega gott…mér finnst oft venjuleg Lasagna vera hálfgerð drulla og fullt af Lasagna blöðum.
Þetta er mun léttara og þéttara 🙂
Og súper einfalt og ekki dýrt .