Fylltur Kúrbítur.
2 stórir kúrbítar
Gott nauta hakk ( fékk mitt hjá Kjöthöllinni 3-4% fita)
1 rauðlaukur
3 stórar gulætur
3 rif hvítlaukur
2 stiklar ferskur aspas ( má alveg sleppa…átti bara til
Góð lúka Blaðlauks spírur
Salt-pipar-Herbes de Provence ( pottagaldrar)
1 msk. Hamp fræ með ítölsku kryddi ( lifandi markaður)
3 msk. sweet chilly sósa ( lifandi markaður)
Aðferð.
Skola kúrbítinn og skera í tvennt ( taka endana af)
Skera úr kjötið sjálft.
Og saxa það niður smátt.
Setja skeljarnar af Kúrbítnum í eldfast mót og salt í sárin.
Setja inn í ofn og baka 15min. 200gráðum.
Skera allt grænmetið niður smátt.
Merja hvítlaukinn.
Kjötið úr Kúrbítnum blandað saman við grænmetið .
Grænmetið steikt á pönnu ( ég þarf ekki fitu á mína pönnu)
Síðan er kjötinu blandað við og steikt með .
kryddað eftir smekk.
Hampblöndunni og sweet chilly bætt út í og allt steikt saman.
Tekið af pönnunni og skeljarnar fyltar og smá parmesan yfir.
Sett inn í ofn og aðeins hitað saman.
Síðan bara setja á disk og meira af parmesan ef maður vill 🙂
Fín að borða með Kotasælu.