
Uppskrift af Heimagerðu Hrökkbrauði.
1 dl hörfræ
1 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl 5 korna blanda úr Krónunni
1 dl gróft haframjöl fæst glútenfrítt í Kosti.
2 1/2 dl Möndlumjöl
1 dl Sesamfræmjöl
1 1/2 tsk saltverkssalt (notaði Blóðbergsaltið)
1 1/4 dl. olía
2 dl vatn
Allt hráefni í skál og hrærið með sleif.
Ef deigið er þunnt er gott að láta það standa smástund því fræin drekka vökvan í sig.
Setjið deigið á bökunarpappir og annað blað yfir og rúllið með kökukefli.
Þessi uppskrift passar á 1 plötu og gott að gera rákir í svo betra sé að brjóta í sundur. Bakið í 15 til 20 mín á 200 gráðum.
Svo stráði ég agnarögn af Lakkríssalti frá Saltverki yfir 🙂