Þessi dressing eða mæjó er sjúklega góð.
Ef þið eruð ekki fyrir hvítlauk bara sleppa og nota eitthvað annað eða minka magnið.
Innihald.
1/2 bolli cashew hnetur (ég nota frá Sólgæti)
1/4-1/2 bolli vatn
1/2 sítróna (bara safinn)
1 tsk. Dion sinnep (eða annað gott sinnep)
1/2 tsk. síróp
1 hvítlauksrif
Örlítið af Heita pizza kryddinu frá Pottagaldrar fer eftir hvað maður vill af chillí í sósuna Örlítið salt og pipar.
Allt í blandara og vinna í silki ,silki ,silki mjúka sósu
Vatnsmagnið segir til hvað þunn eða þykk sósan er.
Dressingin þykknar í ísskáp.
Ein athugasemd við “Cashew hnetu dressing eða mæjó.”