Hádegi var í tvennu lagi í dag 🙂
Fyrst var það Lifandi Markaður í Borgartúni.
Fékk mér Grænu þrumuna .
Verslaði svo aðeins…er eins og barn í nammi landi inn í þessari dásemdarbúð 🙂
Kom heim með þessa dollu af algjörri snild yfir Salat og súpur tildæmis.
Ítölsk fræ blanda með Hemp fræjum.
Fékk mér Blómkálsgrjón, avacado , heimagerðu chilly sósuna og síðan stráði ég þessari dásemd yfir.
Þetta er frábær matur eftir stórgóða æfingu 🙂
Við stelpurnar í morgunþrekinu í Heilsuborginni tókum vel á því í morgun og líkaminn kallar á góða orku eftir svona átök!