Lífið er NÚNA….lifðu :)

Góðan daginn. Lífið er til að njóta gott fólk 🙂 Hugsið vel um ykkur sjálf. Andlega og líkamlega. Ef allt virðist vera hálf vonlaust fáið hjálp. Það er alltaf hægt að laga hlutina. Þótt kílóin séu í tugum hangandi þarna og lífið virðist alltof þreytt…..þá er alltaf hægt að finna leið að léttara lífi. Kílóin þurfa ekki að vera fyrir til að lífið sé erfitt. … Halda áfram að lesa: Lífið er NÚNA….lifðu 🙂

Lifandi Markaður.

Í henni Reykjavík er ekkert lengur erfitt að finna hollustuna 🙂 Ef að maður er í því stuðinu að fá sér hollan “ Take away “ þá er það lítið mál. Ég elska hreinlega Lifandi Markað í Borgartúni. Fæ svo frábæra þjónustu 🙂 Vörurnar til fyrirmyndar og veitingastaðurinn bíður upp á hreina hollustu og alveg súper góðan mat. Fékk mér þetta Kjúklinga salat með Kínóa … Halda áfram að lesa: Lifandi Markaður.

Öskudagur og pæling í morgunsárið .

Góðan daginn . Já það er þetta með að gefa sjálfum sér val 🙂 Taka ákvörðum með sjálfum sér og STANDA við hana. Hvaða leið vitu fara? Hefurðu séð fyrir þér í hvaða tölu á vigtinni þú ætlar að segja hingað og ekki lengra? Hvernig ætlar þú að hafa þetta? Málið er hreinlega þú hefur val. Að fara þá leið að bera ábyrgð á sjálfum … Halda áfram að lesa: Öskudagur og pæling í morgunsárið .

Vikupassi í Heilsuborg.

Góðan daginn . Vaknaði í morgun með svo miklar harðsperrur að ég var á mörkum þess að vera systir „Gosa“ spítudrengs  Dúddamía… Þetta tekur á allt saman 🙂 En sannarlega þess virði. Og er ég komin í gallann enn og aftur og nú er það Tabata sem ætlar að koma þessum harðsperrum frá borði i dag . Já ég er búin að stunda líkamsrækt núna … Halda áfram að lesa: Vikupassi í Heilsuborg.

Bolludags pæling .

Góðan „bolludaginn“ Já svo einfalt var það nú vaknaði bara einn daginn fékk nóg og breytti sjálfri mér ! Barbabrella og málið er dautt. 50 kíló farin og bara hamingja. EINMITT. Nei svo aldeilis auðvelt er þetta ekki  Það er engin brella við að koma sjálfri sér til léttara lífs  Ekkert hægt að smella fingrum og þetta er komið. Það þarf að vinna fyrir þessu … Halda áfram að lesa: Bolludags pæling .

Bjartara líf og bættur lífsstíll.

Góðan daginn.Sunnudagur til sælu 🙂 Já það er sko málið í dag. Strákarnir mínir á körfuboltamóti svo mamman og unglingurinn einar heima . Svo það er rólegur morgun hér í Seljahverfinu. Vorið virðist vera koma 🙂 Allavega syngja hér fuglar alveg í kór og viti menn flugur bara suðandi eins og ekkert sé . Ég sé fram á bjartari daga  Iss þótt snjói í kaf … Halda áfram að lesa: Bjartara líf og bættur lífsstíll.